Verkís leiðir 2,5 milljarða orkuskiptaverkefni um rafeldsneyti í sjóflutningum. Sjóflutningar þurfa að verða umhverfisvænni en það er markmið GAMMA verkefnisins sem styrkt er af Evrópusambandinu, svo fyrirtæki og vísindamenn frá Evrópu geti þróað tæknilausir og breytt ítölsku flutningsskipi til að nýta rafeldsneyti í stað jarðefnaeldsneytis fyrir hluta af orkuþörf skipsins.

Í nýsköpunarverkefninu GAMMA er unnið að því að þróa og prófa nýsköpunarlausnir í orkuskiptum með endurbótum á flutningaskipi í rekstri (e. retrofit) og koma svo lausnunum á markað. Það segir Kjartan Due Nielsen, nýsköpunarstjóri hjá Verkís, en Verkís leiðir þetta umfangsmikla verkefni.

„Fyrir hönd alls hópsins og samstarfsaðila get ég sagt að við erum afar stolt og þakklát því að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur valið að styðja við þetta verkefni að gera alþjóðlegar siglingar umhverfisvænni. Við munum setja nýjan tækjabúnað um borð í flutningaskip og prófa meðan skipið er í flutningum á milli landa og sanna að hægt sé að nota eldsneytiskerfi sem gengur fyrir rafeldsneyti í stað þess að nota jarðefnaeldsneyti á varaaflvél skipsins. Ef það gengur eftir væri næsta skref að skipta um aðalvél skipsins fyrir full orkuskipti. Verkefnið er mjög framsækið og getur gjörbylt orkuskiptum á sjó,“ segir Kjartan.

Nýtt eldsneytiskerfi verður sett upp í flutningaskipinu án þess að skerða rekstrargetu þess. Ammoníak og lífmetanól verður dælt um borð í skipið og síðan umbreytt í vetni. Vetninu er svo breytt í raforku með efnarafali sem mun sjá um að knýja varaaflvél skipsins (e. auxillary generator). Sú orka sem þarf til þess að umbreyta vetninu verður fengin með sólarsellum sem verður komið fyrir á skipinu.

Loftslagsvænni sjóflutningar

Hefðbundnir skipaflutningar krefjast mikils magns af jarðefnaeldsneyti og losa 2,5% gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu, en um 80-90% vöruflutninga í heiminum eru með flutningaskipum og fara vaxandi. Því er til mikils að vinna og getur verkefnið haft mikið að segja þegar kemur að orkuskiptum á sjó.

Alþjóðasiglingamálastofnunin (e. International Maritime Organizations, IMO) hefur sett það markmið fyrir sjávarútveginn að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stefna á kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. GAMMA verkefnið mun styðja við þetta markmið. Ljóst er að hröð þróun mun þurfa að eiga sér stað til þess að markmið IMO um kolefnishlutleysi náist. Langflest stórflutningaskip í dag ganga fyrir jarðefnaeldsneyti og líftími skipa er langur. Því er mikilvægt að finna möguleika til þess að nýta eldri skip áfram uppfæra þau vistvænni tæknilausnum.

Meira um GAMMA verkefnið

GAMMA stendur fyrir “Green Ammonia and bioMetanol fuel MAritime vessels” og að verkefninu stendur öflugt og fjölbreytt teymi 16 fyrirtækja og rannsóknarstofnana frá 11 Evrópulöndum. GAMMA verkefnið hófst í janúar 2024 og mun standa yfir í fimm ár.

Samstarfsaðilar Verkís í GAMMA eru ANT Topic (Ítalía), Fraunhofer (Þýskaland), Aurelia (Holland), Ballard (Danmörk), Sea Green Engineering (Ítalía), Energy Cluster Denmark (Danmörk), SINTEF (Noregur), Solbian (Ítalía), Amethyste (Frakkland), Elkon Elektrik (Tyrkland), Politecnico di Milano (Ítalía), ARM Engineering (Frakkland), RINA (Þýskaland), Amnis Pura (Portúgal) og Dotcom (Ítalía).

Ef þú vilt fá vita meira um GAMMA verkefnið verður verkefnastjóri verkefnisins á bás E42 og kynningar um verkefnið haldnar á milli 11.30-12.00 á kynningarsvæði bæði miðvikudag og fimmtudag.

 

GAMMA-vessel (ID 423445)

GAMMA-vessel (ID 423445)