Á hverju ári er talið að um 10 milljónir tonna af hráefni fari forgörðum í fiskvinnslum og fiskeldisstöðvum heimsins. Því er það mikilvægt fyrir hagkerfi alþjóðlegs sjávarútvegs að hægt sé að hámarka nýtingu sjávarafla og verðmæti þeirra afurða sem hægt er að skapa úr því sem kastað hefur verið á glæ um langa hríð. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli ræðumanna á ráðstefnunni Fish Waste for Profit sem hófst í dag, en hún er haldin samhliða Íslensku sjávarútvegssýningunni 2022.
90% af þorskinum nýttur
Nú er nýtt um 90% af þeim þorski sem veiðist við Íslandsstrendur, þar með talið það sem flokkast undir hliðarafurðir. Jónas Viðarsson, sviðsstjóri verðmætasköpunar hjá MATÍS, sagði að vegna mikillar áherslu á fjárfestingar í menntun, rannsóknum og þróun væri kominn fram á sjónarsviðið stór hópur ungs fólks með ferskar hugmyndir. Þessi hópur hefði gengið til liðs við sjávarútveginn og umbylt honum á seinustu árum og áratugum.
Jónas benti líka á að á sama tíma hefði miklu fjármagni verið varið í að nútímavæða íslenska skipastólinn og því eru færri og skilvirkari skip að veiðum, betur búin til að vinna aflann en fyrrum og það hráefni sem fellur með. Sama hafi gerst hjá fiskvinnslunni, sem leggi nú ríka áherslu á að þróa og nýta hliðarafurðir sjávarfangs.
„Það eru færri sem starfa í fiskvinnslu heldur en áður var, en áherslan er meiri á hráefnið,” sagði Jónas en lagði áherslu á að hægt væri að ná enn meiri árangri á þessu sviði.
„Allir gera sér nú grein fyrir að það er ekki nóg að einbeita sér eingöngu að fiskflökum, þau eru aðeins 40% af fisknum, og menn geta ekki fleygt 60% af fiskinum á brott. Það er ekki sjálfbært og það eru óhagkvæm viðskipti.”
Stöðugt að bætast við nýir möguleikar
Jónas sagði að hægt væri að búa til fjölmargar afurðir úr því hráefni sem löngum hefur verið fargað, og nýir möguleikar séu sífellt að koma til sögunnar. Í þessum vörum felist mikil verðmæti.
Ráðstefnugestir fengu að heyra að Ísland væri í fararbroddi í aukinni nýtingu sjávarfangs. Árið 2017 var áætlað að um 72% af þorski væri nýttur en samkvæmt greiningu frá 2021 væri áætlað að það hlutfall næmi nú 90%, þar á með talin framleiðsla hliðarafurða.
„Þetta er vitanlega frábært hlutfall, saman borið við það sem gerist annars staðar í heiminum. En það ætti samt að ganga lengra í þessum efnum og leggja meiri áherslu á verðmætin,” sagði Jónas. Hann nefndi í því sambandi karfann, þar sem einungis 35% af fisknum er nýttur til manneldis en afgangurinn er nýttur sem beita eða í framleiðslu fiskimjöls.
„Nýtingin er vissulega 100% en við getum gert betur. Við getum búið til meira af matvælum úr hráefninu og við getum skapað aukin verðmæti með því.”
Nýta þarf höfin betur í þágu fæðuöryggis
Hann ræddi einnig þær áskoranir sem mæta heimsbyggðinni varðandi fæðuöryggi. Jónas minnti á að þó að höf þekji 71% jarðarinnar sé sjávarfang aðeins 158 milljónir tonna af þeim 4 milljörðum tonna matvæla sem framleidd eru árlega í heiminum.
„Við erum í raun og veru ekki að nýta höfin,” sagði hann. „Við getum ekki framleitt nægan mat fyrir 10 milljarða jarðarbúa árið 2050 nema að nýta allar þær auðlindir sem okkur standa til boða – og með því að nýta þær allar til fulls.”