Skoska fyrirtækið Gael Force Group, sem sérhæfir sig í að útvega búnað, tækni og þjónustu fyrir fiskeldi, hefur hleypt af stokkunum herferð til að laða að nýtt og öflugt starfsfólk á sviði sölu og vöruþróunar. Þetta er gert til að fyrirtækið geti náð áætlunum sínum um vöxt og þróun.

Herferðin miðar að því að styðja við áframhaldandi útvíkkun, vöruþróun og vöxt þeirra á erlendum mörkuðum, en Gael Force Group hefur upplifað verulegan vöxt á undanförnum árum. Vöxturinn hefur verið knúinn mikilli eftirspurn eftir vörum og þjónustu þeirra innan fiskeldisiðnaðarins. Gael Force leitar nú að hæfileikafólki til að ganga til liðs við fyrirtæki, til að viðhalda áframhaldandi vexti, standa við skuldbindingar varðandi þróun næstu kynslóða tækjabúnaðar og auka sölu á útflutningsmörkuðum.

Meðal annars er leitað eftir sölustjóra útflutnings, sem er ábyrgur fyrir að auka sölu á vörum og þjónustu fyrirtækisins á alþjóðamörkuðum, einkum á sviði fiskeldis. Sölustjóri útflutnings þarf einnig að greina ný viðskiptatækifæri á markaði, vera í forsvari fyrir skilvirkum og arðbærum vexti á sölu erlendis, auk þess að viðhalda samböndum við alþjóðlega viðskiptavini. Vegna eðlis starfsins munu bæði skoskir og alþjóðlegir umsækjendur koma til greina. Gert er ráð fyrir að stöðunni fylgi reglulegar ferðir um heiminn til að hitta viðskiptavini og sækja sýningar.

Gael Force Group leitar einnig eftir nýjum tækniforstjóra (CTO) til að leiða vöruþróunarverkefni og stýra verkfræðiteymi fyrirtækisins, sem þykir vera í fremstu röð. Forstjóri tæknisviðis mun gegna lykilhlutverki við framtíðarmótun á vörulínum fyrirtækisins, ásamt því að vinna að alþjóðlegum árangri og hafa yfirumsjón með tæknilegri þróun, stefnumótun og framkvæmd, þar með talið nýsköpun, hönnun og stjórnun á líftíma vöruflokka.

„Við viljum byggja á velgengni okkar með því að fara inn á nýja markaði, auka vöruúrvalið og getu okkur á sviði nýsköpunar,“ segir Stewart Graham, framkvæmdastjóri Gael Force Group. „Með því að ráða rétta einstaklinga í þessi lykilstörf erum við viss um að við munum halda áfram að mæta kröfum viðskiptavina okkar um áframhaldi þróun með enn áreiðanlegri og nýstárlegri lausnum. Þetta snýst um að tryggja sköpun verðmæta af bestu gerð og fara fram úr væntingum viðskiptavina með því að veita þeim hágæða vörur og þjónustu á heimsmælikvarða.“

Gael Force sýnir vörur sínar á P37 á IceFish 2024.

Gael Force Feed Barges

Gael Force Feed Barges