IceFish fagnar núna 40 ára afmæli og mun af því tilefni verða einkar glæsileg í alla staði. Nýjasta tækni og þjónusta í sjávarútvegi er til sýnis, bæði fyrir almenna gesti og mögulega viðskiptavini úr bæði sjávarútvegsgeiranum og tengdum atvinnugreinum.
IceFish mun fagna 40 ára stórafmælinu sínu með því að heiðra sérstaklega hjartkæra sýnendur sem hafa fylgt henni allar götur frá árinu 1984! Sýningin heldur áfram að vaxa og dafna og má nefna að á sýningunni núna eru 57 nýir sýnendur frá 14 mismunandi löndum.
IceFish-sýningin í ár býður meðal annars upp á:
· Nýtt kynningarsvæði fyrir sýnendur til að koma á framfæri nýjungum, verkefni og þjónustu.
· Nákvæmt yfirlit kynningar á nýjum vörum og þjónustu til að gefa gestum tækifæri til að skipuleggja dagskrá sína og velja hvað og hverja þeir vilja sjá á sýningunni.
· Fjölbreytni í fagi sem þróast stöðugt meira í vinnslu sjávarafurða.
· Ókeypis fyrirtækjastefnumót fyrir gesti og sýnendur, skipulögð af sjávarútvegs-og þjónustudeild Enterprise Europe Network Iceland í samstarfi við Rannís.
· Íslensku sjávarútvegsverðlaunin verða afhent 18. september, en þau heiðra framúrskarandi árangur í greininni.