Danska fyrirtækið Schur hefur starfað allar götur síðan 1846. Það er elsta fjölskyldurekna umbúðafyrirtæki veraldar og starfar nú vítt og breitt um heiminn. Fyrirtækið verður með sýningarbás E40 á IceFish 2024 og kynnir þar Scur Star System, nýstárlega alhliða pökkunarlausn fyrir sjávarútveginn og ótal aðrar atvinnugreinar. Lausnir fyrirtækisins hafa margvíslega kosti í för með sér og hafa fengið ákaflega góðar viðtökur viðskiptavina þess.

Schur Star er sérsniðin að þörfum sjávarútvegsins og felst í sveigjanlegum umbúðum úr hágæðaefni með fjölmarga notkunarmöguleika. Fyrirtækið leggur áherslu á að Schur Star-umbúðirnar tryggi að sjávarfang sé geymt, varðveitt og því hlíft með öruggum hætti, til að viðhalda ferskleika og gæðum vörunnar. Pökkun í umbúðirnar fer fram með mikilli gætni til að lágmarka skemmdir á þeim, sem skiptir miklu máli fyrir viðkvæmar sjávarafurðir. Fjölbreytni í lögun og gerð hlífðarpoka veitir einnig viðskiptavinum ótal tækifæri við útfærslu og framsetningu á vörumerkjum sínum, sem eykur sýnileika sjávarafurða þeirra í smásöluverslunum og standandi frystiskápum.

Með því að hafa marga staði fyrir áfyllingu í umbúðir er pökkunarferlið straumlínulagað, flöskuhálsum fækkað og stundvísi tryggð varðandi dreifingu.

Forsvarsmenn Schur segja það mikið tilhlökkunarefni að kynna nokkrar af nýjustu umbúðalausnum fyrirtækisins á IceFish 2024: „Um leið og sjávarútvegsfyrirtæki velja Schur Star-lausnina hafa þau tryggt sér áreiðanleika og skilvirkni á sviði umbúða fyrir afurðir sínar. Við höfum sérþekkingu á markaði með sjávarafurðir og bjóðum upp á nýstárlega valkosti varðandi pökkun, sem tryggja að vörur viðskiptavina okkar séu geymdar, varðveittar og þeim hlíft frá vinnslu til kaupenda á áhrifaríkan og árangursríkan hátt.”

 

[Schur Star Systems.jpg] Myndatexti: Schur Star Systems er sérsniðin lausn til að uppfylla ítrustu kröfur við meðhöndlun, geymslu og flutning sjávarafurða.

 

SChur STar

SChur STar