Ísfell er leiðandi fyrirtæki í þróun, framleiðslu og þjónustu á veiðarfærum. Fyrirtækið sérhæfir sig einnig í fiskeldisþjónustu, hífi- og fallvarnarlausnum ásamt því að selja rekstrar- og öryggisvörur.

Isfell_Logo_duotone-CMYK (002)

Þjónusta Ísfells einkennist af framúrskarandi starfsfólki með víðtæka reynslu og sérhæfða þekkingu, áreiðanleika í viðskiptum og sölu á úrvali af útgerðar- og fiskeldisvörum, björgunarvörum, bindivörum og rekstrarvörum.

 

VÖRUÞRÓUN

Í vöruþróunarferli fyrirtækisins á veiðarfærum er notast við tölvuhermun og prófanir í straumtanki til að ná fram þeim eiginleikum veiðarfæranna sem til er ætlast. Öflugt samstarf er við notendur veiðarfærana sem er gríðarlega mikilvægur þáttur í nýsköpun og stuðlar að stöðugum umbótum hjá Ísfelli.

FISKVEIÐAR

Ísfell er leiðandi í hönnun, þróun og framleiðslu á veiðarfærum. Fyrirtækið býður meðal annars upp á botntroll, flottroll og nætur sem eru sérsniðin að þörfum hvers og eins, fyrir ólíkar aðstæður og fisktegundir. Lögð er rík áhersla á að mótstaða veiðarfærisins sé sem minnst þannig að þau séu létt í drætti og veiðihæfni sé góð.

Ísfell er í fremstu röð fyrirtækja sem útvega veiðarfæri fyrir línu- og netaveiðar. Fyrirtækið sérhæfir sig í hvers kyns stoðbúnaði fyrir línu- og netaveiðar sem stuðlar að því að veiðarnar verði sem árangursríkastar og hagkvæmastar.

FISKELDI

Ísfell hannar, framleiðir og selur allar gerðir fiskeldispoka, fuglanet og kastnætur að óskum og þörfum kaupanda. Fyrirtækið framleiðir segl, dúka og skugganet til notkunar fyrir fiskeldi ásamt öðrum búnaði til notkunar í eldispoka.

Ísfell starfrækir eina fullkomnustu þjónustustöð fyrir þvott og yfirferð á fiskeldispokum. Þjónustustöðin uppfyllir kröfur fyrir fiskeldi NS9415. Starfsemin er úttekin og vottuð af DNV-GL.

 
 

Heimilisfang:
Oseyrarbraut 28
220 Hafnarfjordur
Iceland

Vefsíða:
www.isfell.is

Samfélagsmiðlar:
Facebook
YouTube