Sem leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í dælutækni eru lausnir DESMI byggðar á þrautreyndri tækni sem hefur verið notuð í krefjandi aðstæðum um allan heim. Lausnirnar eru þekktar fyrir áreiðanleika og langan líftíma, jafnvel við erfiðustu rekstraraðstæður.

Dælulausnir okkar eru notaðar í fjölmörgum aðstæðum á mismunandi sviðum atvinnulífsins. Með lausnamiðaðri nálgun og nýtingu á yfir 190 ára reynslu okkar, ígrundum við heildar umfang hvers verkefnis, með þátttöku allra hagsmunaaðila til að finna hentugustu lausn í hverju tilfelli. Þetta greiningar- og samstarfsferli er rauði þráðurinn í vinnumáta okkar.

Í samstarfi við viðskiptavini okkar í sjávarútvegi, fiskeldi, iðnaði, varnarmálum, eldsneytisdreifingu og orkuiðnaði, hafa dælulausnir okkar og UV-kerfi fengið samþykki og vottun frá fjölmörgum alþjóðlegum vottunaraðilum og stofnunum, þar á meðal en ekki takmarkað við BV , DNV, USCG, IMO og NVI.

Vöktunarkerfi okkar sem byggja á IoT og eru studd af alþjóðlegri þjónustudeild sem starfar 24/7/365, tryggir að dælulausnir okkar eru undir stöðugu eftirliti og þjónustaðar tafarlaust til að viðhalda hámarks tíma í virkni.

Við hjá DESMI trúum því að þetta snúist aldrei eingöngu um vöruna - heldur líka um fólkið. Viðvera okkar á heimsvísu þýðir að þegar haft er samband við DESMI kemst þú í samband við einstaklinga sem koma með mikla reynslu og ósvikna skuldbindingu að borðinu.

Exhibiting with: / Sýnir með: Pavilion of Denmark

 
 

Heimilisfang:
Tagholm 1
Nørresundby
9400
Denmark

Vefsíða:
www.desmi.com

Samfélagsmiðlar:
Facebook
Instagram
LinkedIn
YouTube