Fisktækniskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám í sjávarútvegi á framhaldsskólastigi. Námið er hagnýtt tveggja ára gunnnám sem byggt er upp sem önnur hver önn í skóla og hin á vinnustað. Í starfsnámi er leitast við að bjóða nemendum upp á val um vinnustað /vetfang með hliðsjón af áhugasviði hvers og eins t.d sjómennsku, fiskvinnslu eða fiskeldi.

Fisktækniskóli Íslands býður einnig upp á fjölbreytt námskeið sem tengjast sjávarútvegi á einn eða annan hátt. Námskeiðin eru ýmist, auglýst námskeið á markaði opin öllum, eða fyrirtækjanámskeið sérsniðin að þörfum hvers fyrirtækis. Auk styttri námskeiða býður Fisktækniskólinn upp á lengra nám í gæðastjórnun og Marel vinnslutækni. Námskeiðin hafa verið haldin á fjölmörgum vinnustöðum með góðum árangri.

 
 

Heimilisfang:
Sólheimar 1-5
245 Suðurnesjabær
Iceland 

Vefsíða:
https://www.fiskt.is/

Samfélagsmiðlar:
Facebook
LinkedIn
YouTube
Instagram