Kaldara Group kynnir með ánægju Coolerboxes, nýja línu fjölnota, einangraðra og endurvinnanlegra fiskikassa. Þessi nýstárlega umbúðalausn er hönnuð til að mæta síbreytilegum þörfum fiskeldis- og sjávarútvegsfyrirtækja og samræmist alþjóðlegum áherslum á að draga úr notkun einnota umbúða.

KG Brand Name Option 1

Coolerboxes uppfylla væntanlegar reglugerðarkröfur um 30% samdrátt í einnota umbúðum fyrir 2030 og 70% fyrir 2040. Þeir eru rekjanlegir, endingargóðir og bjóða upp á hagkvæma og umhverfisvæna valkosti við frauðplastkassa (EPS), sem nú eru notaðir í yfir 90% af ferskfiskútflutningi.

Kaldara Group mun einnig kynna Coolertubs, 460 lítra fiskker úr endurvinnanlegu PE frauði, sem eru léttari og betur einangruð en hefðbundin PE ker.

Fyrirtækið leitar að samstarfsaðilum í fiskeldi og sjávarútvegi til að taka þátt í þessari umbúða byltingu, líkt og þegar Kaldara Group leiddi innleiðingu einangraðra kara fyrir áratugum.

Nánari upplýsingar veitir:

Guðmundur Þór Þormóðsson, framkvæmdastjóri

Sími/WhatsApp: +354 888 4828

Netfang: thor@kaldaragroup.com

Vefsíða: https://kaldaragroup.com/

 
 

Heimilisfang:
Laugavegur 39D
101 Reykjavík
Iceland

Vefsíða:
www.kaldaragroup.com